|
Anarkisti er |
a) Rómantískt fífl |
|
b) Geðsjúklingur |
|
|
c) Einstaklingur með yfirnáttúrulega barnalegar hugsjónir |
Einstaklingar og hópar, sem eru til í að rakka niður anarkisma og hvern þann sem sýnir anarkisma áhuga eða fjandinnfjarrimér kennir sig við anarkisma, eru til af öllum stærðum og gerðum.
Sumum verður ekki um kennt. Þau eru að bregðast við eins og hvert og eitt okkar sem viljum vernda okkar lífsstíl; með því að glefsa frá sér. Aðrir gera þetta af hreinni illgirni og geta verið andskoti leiðinlegir en flest fólk bara spyr og hristir svo hausinn með athugasemdir eins og; "þetta hljómar vel en ég hef enga trú á því" á vörunum.
Það er gott og blessað. Það venst alveg að fá slíkar athugasemdir framan í sig endalaust og það er auðvelt að skilja hvers vegna svo margt fólk vill ekki gera annað en misskilja þessa hugmyndafræði.
Við öll og allar okkar formæður og forfeður erum alin upp við andstæðu anarkisma svo langt sem skráðar heimildir ná. Þessvegna eru einstaklingar sem hafa tileinkað sér þessa hugmyndafræði við fyrstu kynni frekar sjaldgæfir. Anarkismi er hugsunarháttur og lífsviðhorf sem þarfnast umhugsunar einungis vegna þess að birtingarmyndir hans eru fáar í dag, en allir geta lært að meta. Þessvegna er oftast þægilegast að hugsa sem svo að öll getum við lært, líka þau sem ganga harðast fram í því að segja okkur hversu ómögulegt það sé að fólk geti almennt borið virðingu fyrir hvort öðru.
Það sem andstæðingar anarkisma hamra gjarnan á er að "fólk sé fífl" og því geti það ekki gengið upp að fólk lifi í sátt og samlyndi án þess að einhver passi upp á það og haldi fólki niðri í reglugerðarbákni. En ef að fólk almennt er "fífl" þá hlýtur sá sem heldur því fram að vera "fífl" líka. Ef að hann eða hún afneitar því á viðkomandi ekkert með að gera ráð fyrir því að allt annað fólk sé fífl og ekki félagslega hæft.
Við megum aldrei gleyma því að öll getum við lært og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt svo fremi að okkar andlega líf sé ekki heft í fordómaþrjósku og bitið sé í skjaldarrendur gegn hverri nýrri hugmynd sem orðuð er. Aldrei gleyma því þegar einhver fer að hella úr sér að "anarkismi sé það nú það alfáránlegasta sem ég hef heyrt um" og "í hvaða heimi býr þetta fólk sem trúir því að einhverjir geti unnið svona saman" að viðkomandi veit yfirleitt ekkert um hvað hann eða hún er að tala og nokkuð vonlaust er um að ætla að uppfræða viðkomandi á staðnum en hann eða hún á alla möguleika á því að læra.
Einstaklingar sem segja eitthvað eins og "þetta er falleg pæling en óframkvæmanleg" eru þau sem hafa kynnst sér málið. Þau gætu nálgast það að heimfæra anarkisma upp á eigið líf. Þannig verður bylting í þeirra lífi. Sérstaklega ef að þeim er rétt meira lesefni um anarkisma.
- Sigurður Harðarson