HVAÐ ER SVONA SLÆMT VIÐ KAPITALISMA!?

HVAÐ ER KAPITALISMI ANNARS?

Kapitalismi, það er svona eins og lýðræði, er það ekki?

(og eru þá ekki andstæðingar kapitalisma, óvinir lýðræðis?).

Reyndar eru kapitalismi og lýðræði tvö mjög ólík fyrirbæri. Í raun er lýðræði sú hugmynd að fólk eigi að hafa stjórn á lífi sínu, að vald eigi að dreifast jafnt milli allra frekar en að skiptast milli nokkurra. Kapitalismi er eitthvað allt annað.

Meðal hinna vestrænu þjóða erum við vön að heyra að við búum í samfélagi byggðu á lýðræði. Það er rétt að við höfum ríkisstjórn sem kallar sig lýðræðiskjörna, hvort að samfélagið er lýðræðislegt er allt annað mál (og það sé vert að spyrja sig hvort að við höfum öll jafnan rétt til að láta í okkar heyra eða eitthvað að segja yfirhöfuð í jafn kyrkingslegu “fulltrúalýðræði” og um er að ræða).

Ríkisstjórnin er bara einn þáttur í samfélaginu og langt frá því að vera sá mikilvægasti þegar við veltum fyrir okkur daglegu lífi. Efnahagskerfi hvers samfélags hefur meiri áhrif á daglega lífið en nokkurt þing eða löggjafarvald, vegna þess að það er efnahagskerfið sem segir til um hver ræður yfir landinu, auðlindum og tækjum samfélagsins, einnig hvað fólk þarf að gera til að hvern dag til að lifa af og “komast áfram í lífinu” og að lokum hvernig þetta fólk horfir á heiminn og hefur samskipti.

           

Kapitalismi er það hagkerfi sem er hvað minnst lýðræðislegt. Í lýðræðislegu hagkerfi myndi hver einstaklingur innan samfélags hafa jafn mikið að segja um auðlindanýtingu og vinnutilhögun. Hinsvegar, í hinu kapitaliska hagkerfi, þar sem allar auðlindir eru í einkaeign og hver keppir við annan um þær, daga auðlindirnar  uppi undir stjórn fárra einstaklinga (les; stórfyrirtækja). Þetta fólk getur þá ákveðið hvernig allir aðrir eiga að vinna þar sem fæstir hinna geta dregið fram lífið án þess að vinna sér inn peninga frá þeim. Þetta fólk ákvarðar einnig landslagið þar sem þau eiga landið og stjórnast með sálfélagslegt ástand samfélagsins, með flesta fjölmiðla á sinni könnu. Og þegar öllu er á botninn hvolft þá þá eru þau ekki eiginlega við stjórnvölinn heldur, því ef þau slaka á verðinum og hætta að vinna í að halda sér á floti lenda þau fljótt á botni pýramídans með öllum hinum.

Það þýðir að enginn er raunverulega frjáls undir hinu kapitaliska kerfi, allir eru jafn háðir náð og miskunnarleysi samkeppninnar.

HVERNIG GENGUR KAPITALISMINN FYRIR SIG?

Svona er hinum frjálsa markaði ætlað að virka: Fólkinu er frjálst að freista gæfunnar að vild og þau sem leggja sig harðast fram og þannig færa samfélaginu hvað mest, er launað með mestum auði. En þetta kerfi hefur stóran galla; það býður ekki öllum sömu tækifæri. Framgangur á hinum “frjálsa markaði” er nær eingöngu háður því hve mikinn auð þú hefur fyrir.

Þegar höfuðstóll er í einkaeign eru tækifæri einstaklingsins til að læra, vinna og eignast auðævi beintengd því fjármagni sem hann eða hún hefur. Nokkrir styrkir breyta engu um þetta. Til að framleiða eitthvað verðmætt þarf auðlindir og ef einstaklingur hefur ekki í auðlindir að sækja sjálf(ur) er viðkomandi háð(ur) þeim sem hafa þær. Á meðan eru þau sem þegar hafa yfir auðlindum að ráða að ná til sín meiri peningum og þannig safnast megnið af auðæfum samfélagsins á fárra hendur. Það þýðir að allt hitt fólkið hefur engan höfuðstól að selja nema eigin vinnu, sem þau verða að selja kapitalistunum (þeim sem stjórna flestum framleiðsluleiðum) til að lifa af.

Þetta hljómar ruglingslegt en er í raun mjög einfalt. Samsteypa eins og Nike hefur nóg af umfram peningum til að opna nýja skóverksmiðju, kaupa nýjar auglýsingar og selja fleiri skó og þannig græða meiri peninga til að nota í fjárfestingar. Blankur launaþræll eins og þú á rétt svo næga peninga til að opna kaffistand og þó svo að þú gerðir það þá er nokkuð líklegt að þér yrði bolað burt úr bransanum af stærra og betur stæðara fyrirtæki eins og Pepsi, sem hefur meiri peninga til að eyða í kynningu (auðvitað eru til uppgangssögur af smámennum sem ná á toppinn í samkeppninni en það er nokkuð augljóst að það er ekki oft að eiga sér stað). Mestar líkur eru á að þú endir í vinnu hjá þeim til að ná þér í lifibrauð, og að vinna hjá þeim eykur vald þeirra því þó að þeir borgi þér fyrir vinnuna geturðu verið viss um að greiðslan er ekki miðuð við framleiðni, því þannig hagnast þeir. Ef þú vinnur í verksmiðju og þú býrð til vélarhluta að verðmæti 100.000 kall á dag færðu líklega ekki borgað meira en 10.000 kall í daglaun. Það þýðir að einhver er að græða á þínu verki og því lengur sem þeir eru að því, því meiri auðæfum safna þeir og því fleiri tækifæri hafa þeir til þess, á þinn kostnað.

HVAÐA ÁHRIF HEFUR ÞETTA Á HINN ALMENNA LAUNÞEGA?

Þetta þýðir að tími þinn og sköpunarkraftur er keyptur af þér, það er það versta við þetta alltsaman. Þegar það eina sem þú hefur til að selja, til að þrauka, er þinn eigin vinnukraftur neyðistu til að selja líf þitt í smáskömmtum bara til að draga fram lífið. Þú kemur til með að eyða stórum hluta lífs þíns í að gera hvaðeina sem þú færð mest laun fyrir í stað þess að gera hluti sem þig virkilega langar til að gera. Þú skiptir út draumum þínum fyrir laun, og athafnafrelsi þínu skiptirðu út fyrir efnislega muni. Í þínum “eigin” tíma geturðu keypt aftur það sem þú skapaðir í vinnutímanum (þannig hagnast vinnuveitendur enn frekar) en þú getur aldrei keypt aftur þann tíma sem þú eyddir í vinnuna. Sá hluti lífs þíns er farinn og þú hefur ekkert til merkis um hann nema þá reikninga sem þú náðir að borga.

Þar kemur að þú ferð að líta á þína sköpunarhæfileika og vinnukraft sem eitthvað utan þíns áhrifavalds, því þú ferð að tengja hvaðeina sem þú gerir við þá lítillækkun að þú sért að gera það sem þér er sagt að gera en ekki það sem þig langar til að gera, nema rétt á meðan þú ert að slappa af (ná þér eftir vinnuna). Hugsunin um að gera eitthvað á eigin forsendum og stefna að eigin markmiðum hvarflar ekki lengur að þér nema í sambandi við þín hobbý.

Jújú, það er eitthvað af fólki sem finnur leiðir til að fá borgað fyrir að gera nákvæmlega það sem þau langar til. En hvað þekkir þú mikið af fólki sem sú skilgreining á við? Þeim einstöku, stálheppnu einstaklingum er haldið á lofti sem sönnun þess að kerfið virki og okkur er skipað að vinna nú af hörku svo að einn góðan veðurdag getum við líka orðið svona heppin. Sannleikurinn er sá að það er bara ekki nógu mikið framboð til að allir geti orðið rokkstjörnur eða hálaunaðir teiknisöguhöfundar. Einhverjir verða að vinna í verksmiðjunum til að fjöldaframleiða plöturnar og tímaritin. Ef þú skyldir ekki ná því að verða næsta heimsfræga körfuboltahetja og endar í því að selja íþróttaskó í einhverri kringlunni þá hefurðu líklegast ekki reynt nógu mikið, svo það er þér um að kenna ef þér leiðist þar eða hvað? En það var ekki þín hugmynd að það eru þúsund skósölumenn fyrir hvern atvinnumann í körfubolta. Ef hægt er að kenna þér um eitthvað þá er það að taka aðstæðum sem bjóða ekki betri möguleika.

Frekar en að keppa að því að komast á toppinn í gæðakapphlaupinu eða næsti vinningshafi í stóra lottóinu ættum við frekar að reyna að átta okkur á hvernig það er mögulegt fyrir okkur öll að gera það sem við viljum við líf okkar. Því jafnvel þó að þú verðir svo heppin(n) að komast á toppinn, hvað með þær þúsundir og aftur þúsundir sem náðu því ekki - hina niðurdregnu skrifstofuþræla, misheppnuðu listamenn, lystarlausu grillara og hundleiðu þjónustustúlkur? Er það þér fyrir bestu að lifa í heimi fullum af fólki sem er ekki hamingjusamt, sem ná aldrei að eltast við drauma sína, sem náðu jafnvel ekki að eignast drauma?

HVAÐ FÆR KAPITALISMINN FÓLK TIL AÐ META MEST?

Undir kapitalisma fara líf okkar að snúast um hluti, eins og hamingju sé að finna í eignum frekar en frelsi til athafna og framtaks. Þau sem sitja á auðæfum hafa þau vegna þess að þau hafa eytt miklum tíma og orku í að finna út hvernig ætti að ná þeim af öðru fólki. Þau sem hafa mjög lítið verða að verja stærstum hluta lífs síns í vinnu til að hafa nóg til að lifa af, og það eina sem þau hafa sér til huggunar vegna ævilangrar hörkuvinnu og fátæktar eru þeir fáu hlutir sem þeim hefur tekist að kaupa, vegna þess að þeirra eigið líf er búið að kaupa af þeim. Milli þessara tveggja stétta er miðstéttin, sem allt frá barnæsku hefur verið hýdd með auglýsingum og öðrum áróðri sem fullyrðir að hamingju, æskufjör, merkingu og allt annað í lífinu sé að finna í veraldlegum eigum og stöðutáknum. Þau læra að eyða lífi sínu við að vinna að söfnun þessa í stað þess að nýta hvert tækifæri til að leita ævintýra og ánægju.

Þannig að kapitalisminn fær verðmætamat allra til að snúast hvað þau hafa frekar en það sem þau gera með því að láta alla verja lífinu í samkeppni um hlutina sem þau þurfa til að lifa af og ná stöðu í félagskerfinu. Fólk væri líklegra til að finna hamingju í samfélagi sem hvetti þau til að meta hæfileika sína til að njóta frelsis og gera það sem þau langar umfram allt annað. Til að skapa þannig samfélag verðum við að hætta að keppast við um stjórnun og fjármagn og fara að skipta gæðunum niður frjálslegar. Einungis þá verða allir algerlega frjálsir til að velja sér líf eftir eigin óskum án þessa að óttast hungur eða útilokun úr samfélaginu.

EN LEIÐIR SAMKEPPNI EKKI TIL FRAMLEIÐNI?

Jú, það er vandamálið. Hagkerfi hins “frjálsa” samkeppnismarkaðar hvetur ekki einungis til framleiðni umfram allt, hann krefst þess þar sem þau sem ekki gæta þess að vera fremst í flokki í samkeppninni eru troðin undir. Og hvað er verið að leggja að veði í þessari samkeppni?

Til að byrja með þá er það hinar löngu vinnustundir. Fjörutíu, fimmtíu uppí sextíu tímar á viku undir hreytingum yfirmanna eða kúnna þar til við erum meira en búin að vera í kapphlaupinu við að komast áfram í lífinu. Að auki eru það hin lágu laun. Fæstum okkar er greidd næg laun til að nægja fyrir skerfi af öllum þeim hlutum sem þjóðfélagið býður til sölu, jafnvel þó að það sé okkar vinnukraftur sem skapar þá. Þetta er vegna þess að á samkeppnismarkaðnum er vinnufólki ekki greitt það sem “það á skilið” að fá, þau fá greitt lægstu upphæð sem vinnuveitandinn kemst upp með að borga þeim án þess að þau yfirgefi hann í leit að betri kjörum. Það er “lögmálið” um framboð og eftirspurn. Vinnuveitandinn verður að gera þetta þar sem hann verður að spara sem mest af sínum höfuðstól til að eiga fyrir auglýsingum, frekari útfærslu fyrirtækisins og öðrum leiðum til að halda haus í samkeppninni. Annars myndi hann ekki endast lengi sem vinnuveitandi og vinnufólk hans færi að vinna fyrir einhvern sem væri sterkari samkeppnisaðili.

Það er til orð yfir þessa löngu vinnutíma og óréttlát laun: Misnotkun. En það er ekki eini ókosturinn við þá framleiðni sem samkeppniskerfið ýtir undir. Vinnuveitendur verða að skera niður á þúsund mismundandi vegu. Þessvegna er t.d. vinnuumhverfi okkar oft hættulegt. Og ef það skyldi þurfa að nota aðferðir sem eru eyðileggjandi fyrir umhverfið til að standa sig í framleiðslu og græða pening þá gefur hagkerfi, sem metur framleiðni umfram allt, enga ástæðu til að eyðilegga ekki villta náttúru til að ná sér í aur. Í það fóru skógarnir, í það fór ósonlagið, í það fóru hundruð tegunda villtra dýra; þau tróðust undir í lífsgæðakapphlaupinu. Í stað skóga höfum við verslunarmiðstöðvar og bensínstöðvar. Loftmengun kemur til af því að það telst mikilvægara að hafa staði til að kaupa og selja heldur en að hafa staði sem bjóða upp á frið og fegurð. Í staðinn fyrir frjálsar og lifandi skepnur höfum við dýr lokuð í búrum á verksmiðjubúum, umbreytt í mjólkur- og kjötvélar og teiknimyndadýr sem syngja í Disneymyndum, það er það næsta sem mörg okkar komast því að sjá villt dýr. Þetta samkeppnishagkerfi okkar neyðir okkur til að skipta hverju því sem er fallegt og frjálst út fyrir hvaðeina sem er skilvirkt, mótað og gróðavænt.

Þetta takmarkast að sjálfsögðu ekki við okkar eigin lönd eða menningu. Kapitalismi og hans verðmætamat hefur breiðst út yfir heiminn eins og faraldur. Fyrirtæki í samkeppni verða stöðugt að stækka markaði sína til að hafa við hvort öðru, hvort sem það gengur fyrir sig með sannfæringu eða valdi. Þessvegna geturðu keypt kók í Egyptalandi og étið á McDonald’s í Thailandi. Gegnum söguna getum við séð dæmi um hvernig kapitalisk stórfyrirtæki hafa þrengt sér leið inn í eitt landið af öðru og ekki hikað við að nota ofbeldi þar sem þess var talin þörf.

Í dag eru manneskjur í nær hverju horni þessa heims að selja vinnuafl sitt til fjölþjóðasamsteypa, oft fyrir minna en hundraðkall á tímann, fyrir tækifæri til að eltast við þær ímyndir auðvalds og stöðu sem þessi fyrirtæki hafa notað til heillunar. Auðurinn sem þeirra vinna skapar er soginn út úr samfélögum þeirra ofaní vasa fyrirtækjanna og í staðinn er þeirra einstöku menningu skipt út fyrir staðlaða einsleitni vestrænnar neysluhyggju.

JÆJA - HVER ER ÞAÐ SVO SEM HEFUR VÖLDIN UNDIR KAPITALISMA?

Í kerfi þar sem fólk stríðir um fjármagn og valdið sem fylgir því, ná þau mestu af báðu sem einskis svífast. Þannig að kapitaliska kerfið hvetur til svika, misnotkunar og samviskulausrar samkeppni, og verðlaunar þá sem ganga lengst með því að láta þeim í té mesta valdið innan samfélagsins.

Stórfyrirtækjunum sem gengur hvað best að sannfæra okkur um að við þörfnumst framleiðslu þeirra, hvort sem að við höfum eitthvað við hana að gera eður ei, eru þau sem ná mestum árangri. Þannig hefur fyrirtæki eins og Coca-Cola, sem framleiðir vöru sem er næsta algjörlega tilgangslaus, náð þeirri valdastöðu sem raun ber vitni. Fyrirtækið er ekki að bjóða upp á eitthvað sem kemur sér vel fyrir samfélagið heldur gengur þeim vel að koma vöru sinni á framfæri. Kók er ekki besti drykkur sem heimurinn hefur smakkað, hann er einfaldlega sá drykkur sem hefur verið markaðssettur á hvað miskunnarlausastan hátt. Þau fyrirtæki sem gengur hvað best að skapa umhverfi sem fær okkur til að kaupa vörur þeirra, hvort sem það er með auglýsingaherferðum eða grófari aðferðum, eru þau sem fá flest tækifæri til að halda áfram að gera það sem þau eru að gera. Þannig fá þau í hendurnar aukna stýringu á því umhverfi sem við drögum fram lífið í. Þessvegna eru borgirnar fullar af auglýsingaspjöldum og skýjakljúfum stórfyrirtækja frekar en listaverkum og almenningsgörðum. Þessvegna er sjónvarpið og dagblöðin uppfull af brengluðum sjónarhornum og beinum lygum. Framleiðendur fyrir sjónvarp og dagblöð eru upp á náð og miskunn auglýsenda komnir og þeir auglýsendur sem þeir treysta á eru þeir sem eiga mesta peninga: Þ.e. þeir sem eru til í hvað sem er, jafnvel að snúa við staðreyndum og útbreiða lygar, til að halda í sína peninga. (Gerðu smá könnun, þá sérðu hversu oft þetta á sér stað).

Kapitalisminn bókstaflega ábyrgist að þau sem stjórna því hvernig samfélagið gengur fyrir sig eru þau gráðugustu og þau illskeyttustu; þau sem eru kaldrifjuðust. Þar sem allir aðrir eru upp á náð og miskunn þeirra komin, og enginn vill vera í tapliðinu, ýtir kapitalisminn undir að allir séu gráðugir, illskeyttir og kaldrifjaðir. Auðvitað er enginn stanslaust eigingjarn og illskeyttur. Afskaplega fátt fólk vill vera þannig eða fær eitthvað út úr því og hvenær sem þau sjá möguleika á að sleppa því þá er það gert. Hinsvegar er hið venjulega vinnuumhverfi skipulagt til þess að gera fólk kalt og ópersónulegt gagnvart hvort öðru.

Ef einhver kemur inn í bakarí svangur og blankur þá gerir stefna fyrirtækisins þá kröfu til starfsfólks að það sendi manninn út tómhentan frekar en að láta hann hafa eitthvað án borgunar, jafnvel þó að bakaríið fleygi snúðum í kílóavís í loks hvers dags, sem mun ekki vera óalgengt. Starfsfólkið fer að líta á fátæklingana sem leiðindapakk og fátæklingarnir bölva starfsfólkinu fyrir að hjálpa þeim ekki. Í rauninni er það kapitalisminn að egna þau gegn hvort öðru. Það sorglegasta er að líklega verður það sá starfsmaður sem gengur harðast fram í því, að svona fáránlegum reglum sé fylgt eftir, sem verður hækkaður upp í framkvæmdastjóra.

Þau sem dirfast að eyða lífi sínu við að gera hluti sem eru ekki gróðavænlegir njóta hvorki öryggis né virðingar fyrir störf sín. Þau geta verið að gera hluti sem skipta samfélagið miklu máli, eins og að skapa tónlist eða leggja stund á félagsleg störf. En ef þau eru að gera eitthvað sem skilar ekki hagnaði munu þau eiga í erfiðleikum með að lifa af, hvað þá að öðlast ný tækifæri til að stækka og útfæra sín verkefni. Þar að auki, þar sem vald kemur fyrst og fremst frá fjármagni munu þau hafa lítið að segja varðandi gang mála í sínu samfélagi. Þannig að stórfyrirtæki sem hafa engin önnur markmið en að ná til sín meira fé hafa alltaf meiri völd í kapitalistasamfélagi en listafólk eða fólk sem er félagslega virkt. Um leið, þá eru ekki margir sem hafa tíma til að gera eitthvað sem skiptir máli án þess að það sé arðbært. Þú getur ímyndað þér hvaða áhrif það hefur.

HVAÐ GERIR ÞETTA VIÐ HEIMINN OKKAR?

Hið kapitaliska kerfi gefur meðalmanninum fá tækifæri til ráðstöfunar varðandi tækni og auðlindir samfélagsins. Þó að það sé vinnukraftur þessa meðalmanns (og allra hinna) sem hefur byggt upp heiminn sem hann eða hún býr í, þá er upplifunin sú að vinnukrafturinn sé eitthvað sem er í annara höndum, hann sé ósnertanlegur hæfileiki sem verkamaðurinn hefur ekkert um að segja. Það er ekki að undra að fólk finni fyrir örvæntingu, umkomuleysi, óánægju og tómleika. En það er ekki bara þetta stjórnleysi sem gerir kapitalismann andstæðan hamingju mannsins. Í stað lýðræðislegrar stjórnunar á lífi okkar og samfélagi búum við, við valdníðslu.

Ofbeldi á sér ekki einungis stað þegar manneskjur valda hvor annari líkamlegum sársauka. Ofbeldið er til staðar, þó á hógværara formi, hvenær sem manneskjur beita valdi í samskiptum. Rót kapitalismans liggur í ofbeldi. Undir kerfi kapitalisma verða hver þau hagfræðilög, sem lúta að mannslífinu, að kúgunarvaldi: Þú skalt vinna eða svelta! Troddu á öðrum eða láttu troða á þér! Stattu þig í samkeppninni eða drepstu! Seldu tímann úr lífi þínu til að lifa af eða rotnaðu í fátækt - eða fangelsi!

Flest fólk fer í vinnu vegna þess að það þarf þess, ekki af því að þau langi til þess. Þau selja tíma sinn til að kaupa mat og húsaskjól og til að borga af öllum stöðutáknunum og lúxus sem þau hafa verið skilyrt til að sanka að sér, einungis vegna þess að þau vita að hinn kosturinn er sultur og útskúfun. Það má vera að þau hafi gaman af ýmsu sem þau gera í vinnunni en þau vildu miklu frekar vera að gera þessa hluti með sjálfum sér, á eigin tíma og á sinn hátt, og marga aðra hluti vildu þau vera að gera, sem þau hafa hvorku tíma né orku til að gera vegna vinnu. Til að kreista hámarks nýtingu út úr fólki, sem vildi helst vera annarsstaðar, nota fyrirtæki óteljandi stýrikerfi: Vinnuskema, stimpilklukkur, vinnustaðaeftirlit. Verkafólk og verkstjórar eru undir sama hatti hagfræðilegs harðræðis og komast að samkomulagi með ósýnilegum hótunum; annar aðilinn hótar atvinnuleysi en hinn hótar lélegu verki og möguleikanum á verkfalli. Flest fólk reynir að halda í einhverja virðingu fyrir mannlegum þörfum í vinnunni en megininnihald hagkerfis okkar er samkeppni og stýring og það sýnir sig alltaf í samskiptum okkar við þá sem eru undir okkur eða yfir í valdapýramída vinnustaðarins.

Getur þú ímyndað þér hve miklu árangursríkara og skemmtilegra það væri fyrir okkur öll ef við gætum látið stjórnast af virðingu frekar en þvingun. Ef við gerðum hlutina vegna þeirrar ánægju sem við hefðum af því að gera þá og ynnum saman af því að okkur langaði til þess ekki afþví að við yrðum að gera það? Myndi það ekki gera mikilvæg verk ánægjulegri og um leið öll okkar samskipti.

Því þessi ofbeldismynd blandar sér einnig í aðra þætti lífs okkar. Þegar þú venst því að líta hlutlægt á fólk, að horfa á manneskjur sem eitthvað sem hægt er að nýta eða eitthvað sem ber að óttast og berjast við, þá er erfitt að skilja þau viðmið eftir, þegar farið er heim. Sá valdapýramídi sem vinnustaðurinn treður inn á fólk sýnir sig allsstaðar annarsstaðar í samfélaginu, í skólum, í kirkjum, innan fjölskyldunnar og í vinasamböndum, hvarvetna eru kraftar stjórnunar og kúgunar að verki. Það er nærri því ómögulegt að ímynda sér úr hverju samband byggt á jafnræði ætti að vera samsett í samfélagi þar sem hver og einn er að trana sér fram.

Þegar börn slást í skólanum eða gengi berjast á götum úti þá eru þau ekki að gera neitt annað en að apa eftir stórtækari þrætum sem eiga sér stað bæði innan og á milli stórfyrirtækja og þjóðunum sem þjónusta þau. Ofbeldi barnanna er talið vera óeðlilegt en það er bara spegilmynd hins ofbeldisfulla samkeppnisheims sem ól þau upp. Þegar mögulega tilvonandi vinir og elskendur meta hvert annað útfrá félagslegri og fjárhagslegri stöðu frekar en að þau fylgi hjarta sínu þá eru þau einfaldlega að sýna hvað þau hafa lært um “markaðsgildi.” Þegar lifað er undir kapitaliskri valdníðslu er nær ómögulegt að horfa á annað fólk og heiminn án þess að pæla í hvað þú græðir á því.

Ef við myndum lifa í heimi þar sem við gætum fylgt væntingum okkar eins og okkur lysti, án þess að óttast það að deyja fátæk og einmana, eins og svo margir lenda í, myndu líf okkar og samskipti ekki vera lituð af ofbeldi. Kannski væri þá aðveldara fyrir okkur að horfa á hvert annað og sjá hið fallega og einstaka, að horfa á náttúruna og virða hana eins og hún er, að lifa lífinu án þess að stöðugt sækjast eftir völdum og frama.

Til hafa verið hundruð annara samfélaga í sögu okkar tegundar þar sem fólk hefur lifað á þann hátt. Er það virkilega til of mikils mælst að halda okkur geta endurskipulagt okkar eigið samfélag á lýðræðislegri hátt?

ÓKEI, ÓKEI, EN HVAÐA VALKOSTI HÖFUM VIÐ?

Það sem við getum valið annað en kapitalisma er samfélag byggt á samráði, þar sem við getum tekið ákvarðanir sem einstaklingar (og í hópum þar sem þess gerist þörf) um hvernig líf okkar og umhverfi skuli vera, í stað þess að neyðast til að hlýða einhverju lögmálarugli eins og “framboð og eftirspurn.” Þetta er bara lögmál ef við leyfum því að vera það. Það er erfitt að ímynda sér samfélag byggt á samvinnu frá okkar sjónarhorni þar sem þau einu samfélög sem við þekkjum til í eru byggð á samkeppni. En þannig samfélög eru möguleg, þau hafa oft verið til gegnum söguna og þau geta orðið það aftur, ef við viljum það.

Til að slíta af sér fjötra samkeppninnar verðum við að þróa hagkerfi sem byggist á að gefa frekar en að skipta: Gjafahagkerfi í stað núverandi skiptihagkerfis. Innan þannig kerfis gæti hver persóna gert það sem hana langaði til við sitt líf og boðið öðrum það sem henni fyndist hún hafa helst hæfileika til að bjóða, án þess að vera hrædd um að svelta í hel. Það hvernig hlutirnir eru gerðir yrði sameign allra í stað þess að hinir gráðugustu söfnuðu því undir sig, þannig að hvert og eitt okkar hefði jafnan aðgang að gæðum samfélagsins. Þau sem vildu gætu málað, þau sem hafa gaman af að setja saman vélar og tæki gætu gert það, þau sem bera tilfinningar til reiðhjóla gætu smíðað þau og gert við fyrir aðra. Hinum svokölluðu “drulludjobbum” yrði komið á fleiri hendur og allir myndu hafa hag af því að geta sinnt fjölbreyttum verkum í stað þess að vera fastir í einni grein eins og tannhjól í vél. “Vinnan” sjálf yrði þúsund sinnum ánægjulegri þegar ekki er um að ræða niðurnegldan tíma með kröfuharða yfirmenn á eftir okkur. Og þó að við kæmum út með hæggengari framleiðslu hefðum við víðari möguleika á virkjun sköpunarþránnar sem gerir lífið ríkara og fyllir það meiri merkingu fyrir okkar. Að auki - höfum við virkilega þörf fyrir allt það glingur og dót sem við leggjum svo mikið á okkur til að eignast, í dag?

Þetta lítur út eins og draumsýn og þetta er það, en það þýðir ekki að við getum ekki látið líf okkar verða líkari þessu en það er í dag. Við höfum fleiri dæmi en Búskmennina á Kalahari eyðimörkinni að horfa á til að sjá dæmi um líf utan kapitalisma. Jafnvel í dag eru í okkar eigin samfélagi fjölmörg tækifæri til að sjá hversu miklu betra lífið er þegar ekkert er verðlagt.

Hvenær sem sjálfshjálparhópur kemur saman til að rækta vinskap og styðja hvert annað, hvenær sem fólk fer saman í útilegu og deilir með sér verkunum, í hvert skipti sem fólk vinnur saman að eldamennsku eða tónlist eða hverju öðru sem það gerir ánægjunnar vegna frekar en peninga er það virkt gjafahagkerfi. Einn af mögnuðust þáttum þess að vera ástfangin eða að eiga náinn vin er að vera metin eins og þú “ert” en ekki hvers “virði” þú ert.

Og hve dásamleg tilfinning það er að njóta hluta sem þú færð upp í hendurnar ókeypis án þess að þurfa að meta hversu mikið af sjálfum/sjálfri þér þú ert að gefa fyrir þá.

Jafnvel í dag er næstum því hvaðeina sem við fáum raunverulega ánægju út úr upprunnið utan hins kapitaliska kerfis. Hversvegna skyldum við ekki gera þá kröfu að njóta þess alla daga sem er að ganga upp í okkar einkalífi? Ef við fáum svo miklu meira út úr samskiptum þegar þau eru laus við kúgun eignarréttarins og samkeppninnar, því skyldum við ekki sækjast eftir að frelsa einnig “vinnusamskiptin” frá þeirri kúgun?

En hver á að hirða ruslið ef við öll gerum það sem okkur stendur hugur til?

Þegar vinahópur býr saman í íbúð er þá ekki ruslið borið út? Mögulega er það ekki tekið út jafn reglulega og þegar húsvörður skrifstofubyggingar sér um það af skyldurækni en það er farið með það út af sjálfsdáðun og það er ekki alltaf sami einstaklingurinn sem þarf að gera það. Að halda því fram að við getum ekki sinnt eigin þörfum án þess að yfirvald þröngvi okkur til þess er stórkostlegt vanmat og grófleg móðgun við mannkynið. Sú hugsun að við myndum öll sitja á rassinum í aðgerðaleysi ef ekki kæmi til vinna fyrir yfirmann, kemur til af þeirri staðreynd að þar sem við verðum að vinna fyrir yfirmann til að lifa af, veljum við frekar aðgerðaleysið. En ef við hefðum orku okkar og tíma fyrir okkur sjálf, myndum við enduruppgötva hvernig á að nýta bæði tvennt, hvort sem það væri í háalvarlegum tilgangi eða ekki. Rifjið upp hve mikið af fólki hefur gaman af garðyrkju, garðyrkjunnar vegna, án þess að hún sé eitthvað lífsspursmál. Glætan að við myndum svelta í hel í samfélagi þar sem við deildum ákvörðunum og valdi í stað þess að rífast, sú staðreynd að fjöldi fólks sveltur í dag bendir til þess að kapitalismi er engu síður illa skilvirkur en hvað annað kerfi getur orðið.

Okkur er oft sagt að græðgi sé í “mannlegu eðli” og þessvegna sé heimurinn eins og hann er. Tilvist annar samfélaga og annars lífsstíls mælir gegn þessu. Um leið og þú hefur áttað þig á því að nútíma kapitalískt samfélag er aðeins ein leið af þúsund mögulegum sem manneskjur hafa lifað og umgengist hvort annað, geturðu séð að þessi umsögn um “eðli mannsins” er vitleysa. Við mótumst fyrst og fremst af því umhverfi sem við ölumst upp í. og manneskjur hafa kraftinn til að byggja sitt eigið umhverfi. Við getum hannað umhverfi okkar nákvæmlega eftir eigin höfði ef við höfum viljann til þess. Auðvitað hrjáir okkur græðgi og árásargirni, við lifum í heimi efnishyggju og ofbeldis. En ef umhverfi okkar væri skilningsríkara gætum við öll lært að umgangast hvort annað á vegu sem væru ánægjuríkari fyrir okkur öll. Við værum öll gjafmildari og nærgætnari ef við gætum það, það er erfitt að vera gjafmildur í heimi þar sem maður verður að selja hluta af sjálfum sér til að fá eitthvað yfirhöfuð. Ef við lítum þannig á málið þá er í raun ótrúlegt hvað fólk gefur hvort öðru mikið af gjöfum.

Fólkið sem talar um “eðli mannsins” segir okkur að eðlið snúist mestmegnis um þrá eftir að eiga og stjórna. En hvað með þrá okkar til að deila með öðrum? Einungis þau sem hafa gefist upp á að gera það sem þau vilja, gleðjast bara yfir því sem þau hafa. Nær öll okkar vita að það er meira gefandi að gefa en að taka. Þau sem halda að “að hegða gjörðum sínum samkvæmt þörfum sínum” komi þeim vel sem tekur, á ósanngjarnan hátt, hafa einfaldlega misskilið hvað það er sem gerir manneskjur hamingjusamar.

Það er freistandi að líta á kapitalsma sem samsæri hinna ríku gegn öllum hinum og halda baráttuna gegn kapitalisma snúast um baráttu gegn þeim. En í alvöru þá er þá kemur það öllum best að við komum þessu efnahagskerfi fyrir kattarnef. Ef að sannur auður samanstendur af frelsi og samkennd þá eru við öll skítblönk. Því að að vera ríkur í samfélagi sem stendur gegn frelsi og samkennd er að eiga hvað mest af ekki neinu. Þetta kerfi er ekki afleiðing illgirnislegs plotts nokkurra glæpamanna sem stefna að heimsyfirráðum, og þó að svo væri þá hefði þeim bara tekist að dæma alla, líka sjálfa sig, til fjötra yfirráða og undirlægni. Við skulum ekkert vera að öfunda þá of mikið þó að úr fjarlægð virðist þeir öfundsverðir. Hver sá sem hefur vaxið upp innan ríkidæmis getur frætt okkur um að þrátt fyrir alla bankareikningana og sjálfvirku garðúðarana þá eru þau engu hamingjusamari eða frjálsari en við erum. Við ættum að reyna að finna leiðir til að við sjáum öll hvað við græðum á að umbreyta samfélaginu og gera alla þátttakendur í því.

Ef að þetta er erfið áskorun að taka, og þér finnst stundum að “almúginn” eigi sinn hlut skilinn fyrir að samþykkja sinn lífsstíl, ekki missa móðinn. Mundu að það kerfi sem þau samþykkja er það sama og þú býrð við. Þinn möguleiki á frelsun er tengdur þeirra möguleika órjúfanlegum böndum.

Ekki láta það slá þig út hve öflin sem standa gegn okkur virðast endalaus, vinnukraftur þeirra afla samanstendur af fólki eins og þér, sem þrá að slíta sig laus úr viðjum. Finndu leiðir til að koma þér útúr hinu ofbeldisfulla kerfi í þínu eigin lífi og taktu hina með þér ef þú getur. Gríptu hverja lausa stund, hvert það tækifæri sem gefst. Það má vera að lífið sé hægt að selja en það er ekki hægt að kaupa það tilbaka, bara stela því.

Crimethinc

Þýtt af Sigurði Harðarsyni


Til baka í greinar