Fréttir, uppfærslur og önnur skilaboð

25.1.09
Þriðjudaginn n.k. 27. janúar verður haldið anarkistaspjall í félagsrými
Kaffi Hljómalindar. Fyrst verður stutt forspjall þar sem nokkrar
grunnhugmyndir eru reifaðar og síðan verða umræður.

Allt áhugafólk velkomið.

Hefst klukkan 18.

Minnum á söfnunarbaukana en þeir eru til að greiða leigu af
félagsrýminu í Kaffi Hljómalind.

P.S. þetta átti að eiga sér stað í síðustu viku en mótmæli dagsins
drógust skemmtilega lengi :)
22.1.09
Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki
djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.

Látið ganga sem víðast.
21.1.09
Fyrirhuguðu anarkistaspjalli sem fara átti fram á Kaffi Hljómalind í gær var frestað um viku þar sem tímabundin hávaðamótmæli gærdagsins breyttust í byltingu.

Þingfundur er boðaður aftur klukkan 13.30 og sömuleiðis frekari hávaðamótmæli til að beita þingheim þrýsting.

Mætum í samstöðuhug, það er enginn pólitískur tékklisti við innganginn, einstaklingar sem hafa hugsað sér að mæta einungis til að pirra lögguna eða djamma eru beðnir að halda sig heima.

Andspyrna, stolt að vera hluti af byltingunni!
19.1.09
Anarkistaspjall á Hljómalind - 20/01/08

Sigurður Harðarson, hjúkrunarfræðingur og anarkisti stendur fyrir anarkistaspjalli á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23 næstkomandi Þriðjudag, 20. Janúar. Sigurður mun byrja á lítilli kynningu á grunnhugmyndum anarkisma sem svo mun leiða út í allsherjar spjall þeirra sem mæta.

Það er alltaf gott að þeorísera örlítið. Fundurinn hefst kl. 18:00.
16.1.09
Hreyfing byltingarsinnaðra stúdenta inna HÍ er komin með manifesto:

...check this out: http://oskra.org/

Öskra - a revolutionary movement inside Háskólki Íslands (University of
Iceland). Their manifesto is on the site, both in English and Icelandic.
6.1.09
Undirbúnings- og viðbragðsleiðbeiningar vegna beitingu piparúða og/eða táragass:

http://aftaka.org/2009/01/05/ma-bjoda-ther-pipar-eda-gas/

Þetta er inter-aktíft verkefni og fólk hvatt til þess að koma með allar nauðsynlegar ábendingar á textann.
Aðgerðatilkynning:

Tvöföld aðgerð þann 7. jan. kl 13. Spillingu innan Landsbankans mótmælt og um leið stuðningsyfirlýsing við aðgerðasinna.
Söfnumst saman fyrir utan Landsbankann í Austurstræti og fylgjumst með táknrænum gjörningi. Tökum með verkfæri til að framkalla hávaða.

Stuðningsmenn aðgerðasinna, jafnvel þótt þeir geti ekki tekið þátt í beinum aðgerðum, ættu að nota tækifærið í þessari vægu aðgerð til að sýna stuðning við þá sem beita borgaralegri óhlýðni, með því að nota lambhússhettur eða bera klúta fyrir andliti.

Tekið héðan: http://www.nornabudin.is/sapuopera/2009/01/agerir_a_mivikudag.html#comments

og héðan: http://tilkynning.blog.is/blog/tilkynning/
3.12.08
Annað tölublað tímaritsins "Lífsmörk - jákvæðar hugmyndir um viðbrögð og aðgerðir á krepputímum" kom út laugardaginn 30. Nóvember og var dreift á mótmælafundum sama dag og 1. des. Rétt eins og með fyrsta tölublað voru 2000 eintök prentuð.

Í þessu tölublaði eru greinar um ýmsa möguleika um skipulag meðal almennings í sambandi við mataröflun, öryggismál, samstöðu gegn gráðugum leigusölum, reiðhjólamiðstöðvar, matargjafir o.fl.

Tímaritið virðist vinsælt sem er aðallega mælt í því að tekið er vel á móti því og að það liggur ekki eftir á jörðunni eftir að fundum lýkur.

Unnið er að þriðju útgáfu. Lífsmörk koma út á hálfsmánaðarfresti.